logo-for-printing

08. febrúar 2011

Hagtölur Seðlabankans: Efnahagsyfirlit lífeyrissjóða

Efnahagsyfirlit lífeyrissjóða fyrir desember 2010 var birt í dag á vef Seðlabanka Íslands.  Hrein eign lífeyrissjóða var 1.920,2 ma.kr. í lok desember og hækkaði um 26,9 ma.kr. í mánuðinum.

Innlend verðbréfaeign hækkaði um 43,4 ma.kr. og nam rúmlega 1.352 ma.kr. í lok mánaðarins. Hækkunina má að mestu leyti rekja til aukningar á eign lífeyrissjóða á íbúðabréfum.

Sjá nánar: Lífeyrissjóðir

Til baka