logo-for-printing

21. desember 2010

Ný Efnahagsmál komin út sem fjalla um peningastefnuna

Annað hefti í ritröðinni Efnahagsmál sem Seðlabanki Íslands gefur út hefur verið birt hér á vef bankans. Í ritinu er birt grein eftir Ásgeir Daníelsson og ber hún heitið: Vextir og gengi þegar peningastefnan er á verðbólgumarkmiði.

Í grein þessari fjallar höfundur um tiltekna þætti í peningastefnu Seðlabanka Íslands á þenslutímum. Meðal annars er fjallað um fullyrðingar ýmissa hagfræðinga um að vextir hafi verið hér of háir og aukið þenslu í gegnum auðsáhrif frá háu gengi. Höfundur leiðir fram röksemdir sem benda til að draga megi í efa fullyrðingar af þessu tagi. Höfundur, Ásgeir Daníelsson, er doktor í hagfræði og er forstöðumaður rannsóknar- og spádeildar hagfræðisviðs Seðlabanka Íslands. Hann hefur ritað fjölda fræðigreina um hagfræðileg málefni.

Sjá hér grein Ásgeirs:

Efnahagsmál. Nr. 2. Desember 2010. Vextir og gengi þegar peningastefnan er á verðbólgumarkmiði. Ásgeir Daníelsson (2010).pdf

Til baka