logo-for-printing

24. september 2010

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2010

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. október 2010 verða vextir sem hér segir:
  

   • Vextir af óverðtryggðum lánum lækka úr 7,75% í 6,75%.
   • Vextir verðtryggðra lána haldast óbreyttir og verða því áfram 4,8%.
   • Vextir af skaðabótakröfum lækka úr 5,2% í 4,5%.

Grunnur dráttarvaxta lækkaði um 0,75% við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands hinn 22. september sl. og því lækka dráttarvextir úr 14,0% í 13,25% fyrir tímabilið 1. - 31. október 2010.

Sjá tilkynninguna í heild sinni:
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2010 (pdf)

Til baka