logo-for-printing

21. júlí 2010

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 8/2010

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Tilkynning þessi gildir fyrir tímabilið 1. ágúst – 31. ágúst 2010.

Frá og með 1. ágúst 2010 breytast eftirfarandi vextir frá síðustu vaxtatilkynningu nr. 7/2010 sem tók gildi 1. júlí sl.:

• Vextir óverðtryggðra lána lækka úr 8,25% og verða 7,75%.
• Vextir af skaðabótakröfum lækka úr 5,5% og verða 5,2%.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir mánaðarlega um, breytast ekki og verða því eftirfarandi vextir óbreyttir frá og með 1. ágúst 2010 sem hér segir:

• Vextir af verðtryggðum lánum verða áfram 4,8%.
• Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu og verða því dráttarvextir áfram 15%.

Sjá tilkynninguna í heild sinni:

Tilkynning um dráttarvexti og fleira, nr. 8/2010 (pdf)

Til baka