logo-for-printing

21. maí 2010

Birting á hagtölum um íslenskt bankakerfi

Vegna bankahrunsins í október 2008 hefur Seðlabankinn ekki getað birt heildstæðar tölur yfir íslenskt bankakerfi frá þeim tíma. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að vinna upp gögn frá október 2008 til apríl 2010. Nú liggja fyrir bráðabirgðagögn fyrir desember 2008 og desember 2009 í fullri sundurliðun.

Upplýsingarnar byggja á gögnum frá bönkum og sparisjóðum eins og þau liggja fyrir á hverjum tíma. Þar sem töluverð óvissa ríkir um mat á eignum í kjölfar bankahrunsins kunna gögnin að taka breytingum eftir því sem áreiðanlegra verðmat verður til.

Heildareignir innlánsstofnana námu 2.956 ma.kr. í lok árs 2009 samanborið við 14.895 ma.kr. í lok september 2008. Útlán og kröfur nema um 70% af heildareignum bankanna í árslok 2009.

Sjá nánar:

Bankakerfi

 

Til baka