logo-for-printing

17. nóvember 2009

Laust starf hagfræðings í Seðlabanka Íslands

Hagfræðingur á hagfræðisviði
Seðlabanka Íslands


Seðlabanki Íslands auglýsir laust til umsóknar starf hagfræðings á hagfræðisviði. Hagfræðisvið annast rannsóknir og greiningu á þróun efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og verðbólguspár og tekur þátt í mótun stefnunnar í peningamálum. Hagfræðisvið hefur m.a. umsjón með útgáfu ársfjórðungsritsins Peningamála og ensku útgáfu þess Monetary Bulletin.

Verkefni hagfræðingsins verða m.a.:

· Almennar rannsóknir, einkum á sviði peninga- og þjóðhagfræði.
· Þátttaka í gerð verðbólgu- og þjóðhagsspáa bankans og framþróun líkana til spágerðar.
· Tilfallandi verkefni og ráðgjöf á ábyrgðarsviðum Seðlabankans.
· Að fylgjast með framvindu efnahagsmála, greina gögn og skrifa um niðurstöður.

Áskilið er a.m.k. meistarapróf í hagfræði og lögð er áhersla á að umsækjandi hafi gott vald á aðferðum til hagrannsókna og notkun hugbúnaðar til tölfræðigreiningar og hagmælinga. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku og ensku, og hæfileika til að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt. Umsækjandi þarf að hafa góða samskiptahæfileika og vera reiðubúinn til hópvinnu af ýmsu tagi.

Upplýsingar um starfið veitir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur, í síma 569­9600. Umsóknum skal skilað fyrir 7. des. 2009 til rekstrar­­stjóra Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík.

Til baka