logo-for-printing

06. október 2009

Rannsóknarritgerð um verðbólgumarkmið og gengissveiflur

Leiðir verðbólgumarkmið til óhóflegra gengissveiflna? Um þetta fjallar rannsóknarritgerð eftir Dr. Þórarinn G. Pétursson sem Seðlabanki Íslands gefur út og birtir á vef sínum. Ritgerðin er á ensku og ber heitið: „Does inflation targeting lead to excessive exchange rate volatility?” Þórarinn er aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands og framkvæmdastjóri hagfræðisviðs bankans.

Í ritgerðinni fjallar Þórarinn m.a. um hvort upptaka verðbólgumarkmiðs leiði til þess að gengissveiflur, umfram það sem hægt er að skýra með hagrænum grunnþáttum, aukist. Niðurstöður hans benda til þess að ekkert kerfisbundið samband sé á milli upptöku verðbólgumarkmiðs og umframsveiflna í gengi gjaldmiðla. Hins vegar benda niðurstöðurnar til þess að aðild að Myntbandalagi Evrópu dragi úr þessum umframsveiflum. Niðurstöðurnar benda því til þess að fljótandi gengi gagnist ekki aðeins til sveiflujöfnunar heldur sé einnig sjálfstæð uppspretta hagsveiflna sem hægt sé að draga úr með því að gerast aðili að gengissamstarfi. Á sama tíma benda niðurstöður hans til þess að upptaka verðbólgumarkmiðs leiði í sjálfu sér ekki til umframsveiflna í gengi gjaldmiðla.

Sjá nánar:

Working Papers (Síða fyrir rannsóknarritgerðir Seðlabanka Íslands)

No. 43 (360 KB)
Does inflation targeting lead to excessive exchange rate volatility?
By Thórarinn G. Pétursson
October 2009

 

Til baka