logo-for-printing

25. ágúst 2009

Málstofa í Seðlabankanum um hagsveiflur og viðbrögð vinnumarkaðar við tæknibreytingum

Í dag kl. 15 verður haldin málstofa í Seðlabanka Íslands um viðbrögð vinnumarkaðar við tæknibreytingum. Frummælandi er Francesco Furlanetto, en hann starfar í rannsóknardeild Seðlabanka Noregs.

Rannsóknarsvið Furlanettos er peninga- og alþjóðahagfræði. Hann er með doktorspróf frá háskólanum í Lausanne í Sviss. Á málstofunni mun hann kynna rannsókn sem unnin er í samstarfi við Tommy Sveen frá Seðlabanka Noregs og fjallar um viðbrögð vinnumarkaðar við tæknibreytingum.

Fyrirlesturinn er á ensku og nefnist: „Business cycle dynamics and the two margins of labour adjustment.“

Málstofan er haldin í salnum Sölvhóli, Seðlabanka Íslands, og er öllum opin. Gengið er inn frá Arnarhóli.

Sjá nánar um málstofur í Seðlabanka Íslands í haust:  Málstofur

Til baka