logo-for-printing

18. ágúst 2009

Kristín Hannesdóttir ráðin í stöðu aðalbókara

Kristín Hannesdóttir hefur verið ráðin í stöðu aðalbókara Seðlabanka Íslands. Kristín hefur BSc. próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og hefur að auki lokið tveimur mastersprófum, þ.e. í fjármálahagfræði frá Copenhagen Business School og í endurskoðun frá Álaborgarháskóla.

Auk þess að hafa staðið að innleiðingu á IFRS 7 (alþjóðlegur reikningsskilastaðall) og gerð reikningsskilahandbókar hjá Glitni hefur Kristín starfað hjá PricewaterHouseCoopers og við kennslu í reikningsskilum. Einnig hefur hún starfað á bókhaldssviði Seðlabankans frá því í nóvember 2008.

 

Til baka