logo-for-printing

23. júní 2009

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 6/2009

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. júlí 2009 breytast vextir frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. júní sl.

Vextir verðtryggðra lána lækka úr 5,9% í 5,8%.

Grunnur dráttarvaxta hefur lækkað um 1,0% frá síðustu dráttarvaxtaákvörðun úr 13,0% í 12,0%. Vanefndaálag er fast 7%. Dráttarvextir lækka því frá 1. júlí 2009 um 1,0% og verða 19,0% fyrir tímabilið 1. júlí - 31. júlí 2009.

Sjá tilkynninguna í heild (pdf-skjal)

Til baka