logo-for-printing

23. júní 2009

Laust starf hagfræðings í Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands auglýsir laust til umsóknar starf hagfræðings á hagfræðisviði. Hagfræðisvið annast rannsóknir og greiningu á þróun efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og verðbólguspár og tekur þátt í mótun stefnunnar í peningamálum. Hagfræðisvið hefur m.a. umsjón með útgáfu ársfjórðungsritsins Peningamála og ensku útgáfu þess Monetary Bulletin.

Verkefni hagfræðingsins verða m.a.:

     - Að fylgjast með framvindu efnahagsmála, greina gögn og skrifa um niðurstöður.
     - Almennar rannsóknir, einkum á sviði peninga- og þjóðhagfræði.
     - Þátttaka í öðrum verkefnum hagfræðisviðs eftir atvikum.

Áskilið er a.m.k. meistarapróf í þjóðhagfræði og lögð er áhersla á að umsækjandi hafi þekkingu og áhuga á efnahagsmálum. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku og ensku, og hæfileika til að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt. Auk þekkingar á hefðbundnum hugbúnaði er það kostur ef umsækjandi hefur góða þekkingu á notkun hugbúnaðar til tölfræðigreiningar og hagmælinga. Umsækjandi þarf að hafa góða samskiptahæfileika og vera reiðubúinn til hópvinnu af ýmsu tagi.

Upplýsingar um starfið veitir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur, í síma 569-9600.

Umsóknum skal skilað fyrir 1. júlí 2009 til rekstrarstjóra Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík.


 

Til baka