logo-for-printing

11. júní 2009

Málstofa um stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahrunsins

Málstofa var haldin í dag um stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahrunsins. Málstofan fór fram í fundarsal Seðlabankans, Sölvhóli.

Frummælendur voru Karen Á. Vignisdóttir og Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hagfræðingar í Seðlabanka Íslands.

Gögn sem kynnt voru á málstofunni:
Staða íslenskra heimila í kjölfar bankahruns - Frekari niðurstöður greiningar Seðlabanka Íslands (.pdf)

Erindi þeirra Karenar og Þorvarðar fjallar um stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahrunsins. Þar voru kynntar frekari niðurstöður greiningar Seðlabanka Íslands á þessu viðfangsefni. Meðal annars er leitast við að svara eftirfarandi spurningum:

  • Hversu stór hluti heimila er með þunga greiðslubyrði í hlutfalli við tekjur, býr við neikvæða eiginfjárstöðu eða hefur orðið fyrir verulegum tekjumissi vegna atvinnuleysis?
  • Hvernig dreifist greiðslubyrði íbúða-, bíla- og yfirdráttarlána eftir tekjuhópum?
  • Hve stór hluti heildarskulda er borinn af heimilum með viðráðanlega greiðslubyrði?
  • Er tekjudreifing heimila með erlend lán frábrugðin heimilum með krónulán?
  • Hver er greiðslubyrði og skuldastaða barnafjölskyldna?
  • Hver er greiðslubyrði og skuldastaða atvinnulausra?
  • Hvernig hafa tekjur breyst milli ára?
  • Hve stór hluti heimila er með meiri skuldir vegna íbúða-, bíla- og yfirdráttarlána en nemur eignum þeirra í húsnæði og fjárhagslegum auði?

Sjá nánar um málstofur: Málstofur Seðlabanka Íslands.

Sjá fyrri tilkynningar um gögn er varða efnið:

Áhrif fjármálakreppu á efnahag heimila - bráðabirgðaniðurstöður starfshóps Seðlabanka Íslands - 11. mars.2009

Fleiri niðurstöður starfshóps Seðlabanka Íslands um skuldir heimilanna - 27. mars.2009

Til baka