logo-for-printing

12. febrúar 2009

Stöðuskýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Í dag birtist á heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins skýrsla um stöðu efnahagsáætlunar Ríkisstjórnar Íslands. Umsögnin er liður í þeirri lánafyrirgreiðslu sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veitti íslenskum stjórnvöldum 19. nóvember sl.

Stöðuskýrslan var samin eftir heimsókn sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins dagana 15. – 19. desember sl. Tilgangur heimsóknarinnar var að meta stöðu og horfur í efnahagsmálum. Sendinefndin átti fundi með stjórnvöldum, þingmönnum og ýmsum hagsmunaaðilum.

Skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins bæði á íslensku og ensku má nálgast hér. Forsætisráðuneytið hefur einnig birt frétt um birtingu skýrslunnar og má nálgast hana hér.

Iceland: Stand-By Arrangement - Interim Review Under the Emergency Financing Mechanism (.pdf)

Stöðuskýrsla AGS um Ísland í desember 2008 (.pdf)

Frétt forsætisráðuneytis um stöðuskýrslu AGS:
Frétt forsætisráðuneytis 120209 um stöðuskýrslu AGS

Til baka