logo-for-printing

06. janúar 2009

Gjaldeyrisviðskipti Seðlabanka Íslands

Eftir að millibankamarkaður með gjaldeyri var endurvakinn [1] hefur dregið mjög úr gjaldeyrisviðskiptum Seðlabankans. Tímabilið 4. til 31. desember seldi Seðlabankinn 12,6 milljónir evra og fékk til sín 1,5 milljónir evra. Nettósala gjaldeyris nam því 11,1 milljón evra. Stærstur hluti þessa, eða 10,8 milljónir evra, stafaði af vöxtum ríkisbréfa, í eigu erlendra aðila, sem leyft er að skipta í gjaldeyri. Seðlabankinn átti því í raun sáralítil viðskipti á gjaldeyrismarkaði á framangreindu tímabili.

 

Nr. 2/2009
6. janúar 2009

 

[1]  Sbr. frétt Seðlabanka Íslands 3. desember 2008

Til baka