logo-for-printing

17. desember 2008

Breytingar á vöxtum Seðlabanka Íslands

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að auka bilið á milli hæstu og lægstu vaxta bankans. Vextir á viðskiptareikningum fjármálafyrirtækja í Seðlabankanum verða lækkaðir úr 17,5% í 15% (21. desember n.k.) , vextir á daglánum hækkaðir úr 20% í 22% (18. desember) og vextir innstæðubréfa og bundinna innlána lækkaðir úr 17,75% í 15,25% (29. desember).

Þessi aðgerð felur ekki í sér breytingu á peningastefnu bankans og stýrivextir bankans verða óbreyttir, 18%. Vaxtabreytingunum er hins vegar ætlað að stuðla að auknum viðskiptum á millibankamarkaði með krónur. 

Nr. 51/2008
17. desember 2008

Til baka