logo-for-printing

28. október 2008

Staða greiðslumiðlunar í landinu og milli landa: Greiðslur til Íslands

Flestum er nú ljóst mikilvægi þess að erlend greiðslumiðlun um starfandi viðskiptabanka á Íslandi gangi eðlilega fyrir sig. Á þessu hafa verið hnökrar undanfarnar vikur og því ákvað Seðlabanki Íslands að miðla slíkum greiðslum í þeim tilvikum sem aðrar leiðir reyndust lokaðar. Jafnframt lýsti bankinn því yfir að hann tryggi að allar greiðslur sem bankar sendi um reikninga Seðlabankans á reikninga innlendra lánastofnana muni skila sér til eigenda reikninga í viðkomandi lánastofnunum. Þeir sem eiga von á greiðslum frá útlöndum verða því að sjá til þess að greiðandinn fái nýjar upplýsingar um greiðsluleiðir.

Hér má finna greiðslufyrirmæli (pdf-skjal - br. 30.10.08) fyrir alla þá gjaldmiðla sem Seðlabankinn getur tekið við. Þau má hafa til hliðsjónar og bæta inn nafni viðtakanda fyrir aftan þar sem stendur „final beneficiary“ og IBAN-númer reiknings viðtakanda þar fyrir neðan áður en upplýsingarnar eru sendar greiðanda.

Sjá nánar:

Staða greiðslumiðlunar í landinu og milli landa

Til baka