logo-for-printing

21. október 2008

Nýtt varðandi greiðslumiðlun: Hnútar að leysast í Bretlandi

Uppfært þriðjudaginn 21. október 2008, kl. 12.10:

Seðlabanki Íslands hefur tekið saman ýmsar upplýsingar um stöðuna í greiðslumiðlun í landinu og milli landa. Þar er lýst stöðunni bæði gagnvart einstaklingum og fyrirtækjum.

Seðlabankinn mun uppfæra þessar upplýsingar á sérstakri vefsíðu.

Sjá nánar

Viðbót þriðjudaginn 21. október 2008, kl. 12.10:

Hnútar að leysast í Bretlandi, en þó hnökrar enn til staðar.

- Bretland: Erfitt hefur verið um vik að koma greiðslum til og frá Bretlandi. Stöðuna má að hluta til rekja beint til aðgerða breskra yfirvalda. Unnið hefur verið að því að leita leiða til að leysa málið og sá hnútur virðist nú hafa verið leystur að mestu. Búast má þó við að það taki nokkra daga að koma greiðslum í eðlilegt horf. (21.10.08 kl. 12.10) Fjármálaráðuneyti Bretlands gaf 17. október 2008 út nánari yfirlýsingu vegna frystingar eigna gamla Landsbankans. Þar kemur skýrt fram að aðgerðir breskra yfirvalda snúa aðeins að tilteknum þáttum í starfsemi gamla Landsbankans. Vonir standa til að í kjölfar þessa takist að losa um stærstan hluta þeirra takmarkana sem verið hafa á greiðslustreymi milli Íslands og Bretlands. Sjá nánar yfirlýsingu fjármálaráðuneytis Bretlands.

Til baka