logo-for-printing

15. október 2008

Sameiginleg fréttatilkynning frá Seðlabanka Íslands og fjármálaráðuneyti Rússlands

Sendinefnd frá Seðlabanka Íslands og fjármálaráðuneytinu heimsótti Moskvu 14. og 15. október til að hefja viðræður við fulltrúa fjármálaráðuneytis Rússlands um mögulega lánveitingu til Íslands. Láninu er ætlað að bæta erlenda lausafjárstöðu Íslands.

Dimitry Pankin, aðstoðarfjármálaráðherra Rússlands, fór fyrir rússnesku samninganefndinni og Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands fyrir þeirri íslensku.

Á fundinum í Moskvu var skipst á upplýsingum, farið yfir núverandi stöðu á fjármálamörkuðum og staða Íslands rædd sérstaklega. Aðilarnir ákváðu að halda viðræðunum áfram.

Dimitry Pankin sagði eftir fundina: „Fundirnir voru mjög vinsamlegir og við höfum fræðst mikið um stöðu Íslands, bankakerfi landsins og íslenska hagkerfið. Við munum fara ofan í saumana á málunum áður en við tökum lokaákvörðun.“

Sturla Pálsson sagði eftir fundinn: „Við erum ánægð með framgang mála og þakklát fyrir hversu fljótt hinir rússnesku viðsemjendur féllust á að hitta okkur og ræða um hið mögulega lán. Við kynntum fyrir þeim Ísland sem fjárfestingarkost þar sem við teljum sem fyrr að undirstöður íslenska efnahagskerfisins séu traustar og að við munum standa af okkur þann storm sem nú geisar á fjármálamörkuðum.“

Nr. 40/2008 
15. október 2008 

Til baka