logo-for-printing

15. október 2008

Bankastjórn Seðlabanka Íslands samþykkir að lækka stýrivexti um 3,5%

Mikil umskipti hafa orðið í íslenskum þjóðarbúskap undanfarnar vikur. Íslenska bankakerfið hefur ekki staðist þá raun sem erfið markaðsskilyrði og brestur á trausti á veraldarvísu í efnahagsmálum ásamt innlendri áhættusækni hafa skapað.

Margvísleg störf hafa horfið á augabragði, eftirspurn hnignað og væntingar eru með daufasta móti á alla mælikvarða mælt. Næstu áhrif brota bankalífsins verða erfið og samdráttur verulegur.

Bráðabirgðaspár litast af framangreindu áliti.

Bankastjórnin hefur átt óformlegar viðræður við aðila vinnumarkaðarins og ýmsa fleiri að undanförnu og yfirfarið þessa alvarlegu stöðu.

Niðurstaða bankastjórnar er því sú að lækka stýrivexti um 3,5% nú. Stýrivextir bankans verða því 12%

Næsti vaxtaákvörðunardagur er 6. nóvember nk.

Nr. 39/2008
15. október 2008 

Til baka