logo-for-printing

29. apríl 2008

Dráttarvextir og vextir af peningakröfum í maí 2008

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. maí 2008 breytast vextir af peningakröfum frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. janúar sl. Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 18,5%, skaðabótakröfur 12,3% og verðtryggð lán 6,3%.

Samkvæmt 6. gr. í kafla nr. III um dráttarvexti í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, geta dráttarvextir breyst 1. janúar og 1. júlí ár hvert og gilda þeir vextir næstu sex mánuði þar á eftir. Dráttarvextir verða óbreyttir, 25%, frá 1. janúar 2008 til og með 30. júní 2008.

Sjá tilkynninguna í heild

Til baka