logo-for-printing

14. apríl 2008

Vorfundur fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Fundur fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (e. International Monetary and Financial Committee) var haldinn í Washington D.C. laugardaginn 12. apríl 2008.

Formennska í kjördæmi Norðurlanda og Eystrasaltslanda er í höndum Svíþjóðar frá 2008-2009. Anders Borg, fjármálaráðherra Svíþjóðar, er því fulltrúi kjördæmisins í fjárhagsnefndinni og talar fyrir hönd þess. Ræða kjördæmisins er birt í heild sinni á vefsíðum Seðlabanka Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Sjá nánar:
Ræða kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltslanda vorið 2008 (pdf)

Til baka