logo-for-printing

12. desember 2007

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum, nr. 11/2007

12. desember 2007

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. janúar 2008 verða vextir af peningakröfum óbreyttir frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. desember sl. Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 16,5%, skaðabótakröfur 11% og verðtryggð lán 6,3%.

Samkvæmt 6. gr. í kafla nr. III um dráttarvexti í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, geta dráttarvextir breyst 1. janúar og 1. júlí ár hvert og gilda þeir vextir næstu sex mánuði þar á eftir. Dráttarvextir verða óbreyttir, 25%, frá 1. janúar 2008 til og með 30. júní 2008. Athygli er vakin á breyttri framsetningu dráttarvaxta í samræmi við breytingu á birtingu stýrivaxta frá því í maí sl., en þeir eru nú birtir sem nafnvextir í stað ávöxtunar eins og áður var. Grunnur dráttarvaxta er því 13,75%, en á móti hækkaði vanefndaálag í 11,25%.

Sjá tilkynninguna í heild (PDF-skjal, 17 KB)

Til baka