logo-for-printing

03. desember 2007

Endurskoðun á gengisskráningarvogum

Seðlabanki Íslands hefur endurskoðað gengisskráningarvogir sem liggja til grundvallar skráningu á vísitölum meðalgengis í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2006. Slík endurskoðun fór síðast fram í desember 2006. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum.

Nýju vogirnar munu mæla gengisbreytingar í vísitölum meðalgengis frá gengisskráningu frá og með 1.desember 2007 og þar til næsta endurskoðun fer fram.

Gengisskráningarvogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli ætíð eins vel og kostur er samsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:

Þrengri vöruskiptavog (A) og þrengri viðskiptavog (C):
- Rússnesk rúbla og eistnesk króna falla út.
- Litháensk litas bætist við.

Breið vöruskiptavog (B) og breið viðskiptavog (D):
- Tyrknesk líra og tékknesk króna bætast við.

Seðlabankinn mun í framhaldinu hætta birtingu núverandi vísitölu gengisskráningar. Vísitalan verður þó reiknuð áfram til ársloka 2008 út frá núgildandi vog sem tók gildi í júlí 2005.

Töflur er sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum:

Vogir 2007, byggðar á gögnum 2006

Vogir 2007

 

Til baka