logo-for-printing

01. nóvember 2007

Seðlabanki Íslands hækkar vexti

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,45 prósentur í 13,75%. Í Peningamálum sem bankinn birtir á heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag eru færð rök fyrir ákvörðun bankastjórnar.

 

Næsta ákvörðun bankastjórnar um stýrivexti verður tilkynnt fimmtudaginn 20. desember 2007. Þar með er einum vaxta­ákvörðunardegi bætt við áður tilkynnta daga í ár. Það er gert til þess að ekki líði of langur tími fram að fyrsta ákvörðunardegi næsta árs. Dagsetningar vaxtaákvarðana 2008 verða birtar í Peningamálum í dag.

Nr. 20/2007

1. nóvember 2007 

 

Klukkan 11 verður fréttamannafundur bankastjórnar sendur út hér á vef bankans. Þar verða færð rök fyrir vaxtaákvörðun og efni Peningamála 2007/3 kynnt.

Til baka