logo-for-printing

06. september 2007

Stýrivextir Seðlabanka Íslands óbreyttir

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýrivöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 13,3%. Í frétt sem bankinn birtir á heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag verða rökin að baki ákvörðunar bankastjórnar kynnt.

Næsta ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Íslands um vexti verður birt fimmtudaginn 1. nóvember n.k.

Nr. 17/2007
6. september 2007

Til baka