
Tvær stöður hagfræðinga lausar til umsóknar
Seðlabanki Íslands auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður hagfræðinga á hagfræðisviði bankans. Hagfræðisvið annast rannsóknir og greiningu á þróun efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og verðbólguspár og tekur þátt í mótun stefnunnar í peningamálum. Hagfræðisvið hefur m.a. umsjón með útgáfu Peningamála og enskri þýðingu þeirra, Monetary Bulletin.
Staða 1
Verkefni hagfræðingsins verða m.a.:
- Að fylgjast með framvindu efnahagsmála, greina gögn og skrifa um niðurstöður.
- Tilfallandi rannsóknarverkefni og ráðgjöf á sviði þjóðhagfræði.
- Þátttaka í öðrum verkefnum hagfræðisviðs eftir atvikum.
Áskilið er a.m.k. meistarapróf í þjóðhagfræði og lögð er áhersla á að umsækjandi hafi þekkingu og áhuga á efnahagsmálum. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku og ensku, og hæfileika til að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt. Auk þekkingar á hefðbundnum hugbúnaði væri það kostur ef umsækjandi hefði góða þekkingu á notkun hugbúnaðar til tölfræðigreiningar og hagmælinga. Umsækjandi þarf að hafa góða samskiptahæfileika og vera reiðubúinn til hópvinnu af ýmsu tagi.
Staða 2
Verkefni hagfræðingsins verða m.a.:
- Almennar rannsóknir, einkum á sviði peninga- og þjóðhagfræði.
- Þátttaka í gerð verðbólgu- og þjóðhagsspáa bankans og gerð líkana til spágerðar og endurbætur þeirra.
- Tilfallandi verkefni og ráðgjöf á ábyrgðarsviðum Seðlabankans.
Áskilið er a.m.k. meistarapróf í hagfræði og lögð er áhersla á að umsækjandi hafi gott vald á aðferðum til hagrannsókna og notkun hugbúnaðar til tölfræðigreiningar og hagmælinga. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á mæltu og rituðu máli og hæfileika til að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt. Umsækjandi þarf að hafa góða samskiptahæfileika og vera reiðubúinn til hópvinnu af ýmsu tagi.
Upplýsingar um störfin veitir Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur, í síma 5699600. Umsóknum skal skilað fyrir 27. september 2007 til rekstrarstjóra Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík.
Til baka