logo-for-printing

30. ágúst 2007

Skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um íslensk efnahagsmál 2007

Í gær, miðvikudaginn 29. ágúst, birti Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn skýrslu um íslensk efnahagsmál á heimasíðu sinni (www.imf.org). Um er að ræða reglubundna skýrslu um stöðu og horfur í efnahagsmálum (e. Staff Report for the 2007 Article IV Consultation) sem samin var eftir heimsókn sérfræðinga sjóðsins hingað til lands í maí sl. (sjá frétt Seðlabanka Íslands nr. 12/2007 frá 11. júní 2007). Skýrslunni fylgja fjórir viðaukar (e. Selected Issues Papers) sem fjalla um gengismál, ríkisfjármál, fjármálakerfið og niðurstöðu ráðstefnu er fjallaði um hnattvæðingu og lítil, opin hagkerfi.

Á heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur einnig verið birt fréttatilkynning um útgáfu skýrslunnar og umræðu um hana í framkvæmdastjórn sjóðsins miðvikudaginn 22. ágúst sl.

Nánari upplýsingar veitir Sturla Pálsson framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 15/2007
30. ágúst 2007

Til baka