logo-for-printing

22. febrúar 2007

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 2/2007

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. mars 2007 eru allir vextir óbreyttir frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. febrúar sl. Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 16,0%, skaðabótakröfur 10,7% og verðtryggð lán 4,95%.

Samkvæmt 6. gr. í kafla nr. III um dráttarvexti í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, skulu dráttarvextir breytast 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Dráttarvextir haldast því óbreyttir 25,0% til og með 30. júní 2007 sbr. vaxtatilkynningu nr. 12/2006, dags. 15. desember 2006.

Sjá síðu um vexti
Til baka