logo-for-printing

04. ágúst 2006

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok júlí 2006

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok júlí 2006 og til samanburðar í lok júní 2006 og í lok desember 2005.

Gjaldeyrisforði bankans dróst saman um 2,5 milljarða króna í mánuðinum og nam 74,3 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 1.024 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gjaldeyrisforðinn breyttist vegna reglubundinna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði og gengistaps.

Gengi íslensku krónunnar styrktist í júlí um 3,7%.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 20,6 milljarða króna í júlí og námu 110 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu lítillega og námu 11,6 milljörðum króna í mánaðarlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 1,5 milljörðum króna í lok júlí miðað við markaðsverð.

Seðlar og mynt í umferð utan Seðlabankans námu 14,5 milljörðum króna í lok júlí og höfðu aukist um 1,3 milljarða króna frá áramótum.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir hækkuðu um 7,1 milljarða króna í mánuðinum og námu 37,9 milljörðum króna í júlílok.

Skuldir Seðlabankans við ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 13,1 milljarð króna og námu 97,7 milljörðum króna í lok júlí.

Grunnfé bankans hækkaði í júlí um 7,7 milljarða króna og nam 52,4 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 38 KB)

Nr. 28/2006
4. ágúst 2006


Til baka