logo-for-printing

06. júlí 2006

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok júní 2006

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok júní 2006 og til samanburðar í lok maí 2006 og í lok desember 2005.

Gjaldeyrisforði bankans jókst um 6,4 milljarða króna í mánuðinum og nam 76,8 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 1.006 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gjaldeyrisforðinn jókst vegna reglubundinna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði og gengishagnaðar.

Gengi íslensku krónunnar lækkaði um 5,1% í júní.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 4,3 milljarða króna í júní og námu 89,4 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 4,9 milljarða króna og námu 11,5 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 1,6 milljörðum króna í lok júní miðað við markaðsverð.

Seðlar og mynt í umferð utan Seðlabankans námu 13,9 milljörðum króna í lok júní og höfðu aukist um 0,7 milljarða króna frá áramótum.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir lækkuðu um 4,4 milljarða króna í mánuðinum og námu 30,8 milljörðum króna í júnílok.

Innstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana í Seðlabankanum hækkuðu um 6,1 milljarð króna og námu 84,6 milljörðum króna í lok júní. 

Grunnfé bankans lækkaði í júní um 3,9 milljarða króna og nam 44,7 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

 

Nr. 26/2006
6. júlí 2006

Sjá frétt í heild ásamt meðfylgjandi töflu (pdf-skjal, 35 kb)

 

Til baka