logo-for-printing

16. júní 2006

Skipan bankastjóra Seðlabanka Íslands

Hér er vakin athygli á frétt sem forsætisráðuneytið gaf út í dag, en þar kemur fram að forsætisráðherra hafi orðið við beiðni Jóns Sigurðssonar um launalaust leyfi frá störfum bankastjóra Seðlabanka Íslands frá og með 15. júní 2006 til 31. ágúst 2006. Í hans stað hefur Ingimundur Friðriksson aðstoðarbankastjóri verið settur tímabundið í starf bankastjóra frá 15. júní 2006 til 31. ágúst 2006.

Til baka