logo-for-printing

05. maí 2006

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok apríl 2006

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok apríl 2006 og til samanburðar í lok mars 2006 og í lok desember 2005.

Gjaldeyrisforði bankans dróst saman um 13,7 milljarða króna í mánuðinum og nam 66,2 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 888 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gjaldeyrisforðinn lækkaði vegna lánahreyfinga ríkissjóðs. Eins og bankinn hefur áður greint frá (t.d. í frétt nr. 26/2005 og í Peningamálum 2005/3) hefur hann keypt gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir hönd ríkissjóðs frá því í september sl. til þess að mæta endurgreiðslu erlendra lána ríkisjóðs 2006, þ.m.t. skuldabréfalán að fjárhæð 250 milljónir evra sem féll í gjalddaga í apríl sl. Á móti lækkun forðans af völdum lánahreyfinga ríkissjóðs vógu m.a. gengishagnaður og reglubundin kaup Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði.

Gengi íslensku krónunnar veiktist í apríl um 5,4%.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 8,1 milljarð króna í apríl og námu 86 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 1,9 milljarða króna og námu 14,6 milljörðum króna í mánaðarlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 1,6 milljörðum króna í lok apríl miðað við markaðsverð.
Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir lækkuðu um 13,5 milljarða króna í mánuðinum og námu 29,9 milljörðum króna í apríllok.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana lækkuðu um 15,2 milljarða króna og námu 76,9 milljörðum króna í lok apríl.

Grunnfé bankans lækkaði í apríl um 13,7 milljarða króna og nam 42,9 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 39kb)

Nr. 16/2006
5. maí 2006

Til baka