logo-for-printing

06. apríl 2006

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok mars 2006

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok mars 2006 og til samanburðar í lok febrúar 2006 og í lok desember 2005.

Gjaldeyrisforði bankans jókst um 7,8 milljarða króna í mánuðinum og nam 79,9 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 1.130 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gjaldeyrisforðinn jókst vegna gengisbreytinga og reglubundinna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði.

Gengi íslensku krónunnar veiktist í mars um 10,3%.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 11,1 milljarð króna í mars og námu 94,1 milljarði króna í lok mánaðarins.

Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 5,1 milljarð króna og námu 16,5 milljörðum króna í mánaðarlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 1,7 milljörðum króna í lok mars miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir hækkuðu um 17,8 milljarða króna í mánuðinum og námu 43,4 milljörðum króna í marslok.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana hækkuðu um 1,1 milljarð króna og námu 92,2 milljörðum króna í lok mars.

Grunnfé bankans jókst í mars um 18,1 milljarð króna og nam 56,1 milljarði króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Sjá fréttina í heild með töflu (pdf-skjal, 37 KB)

 

Nr. 13/2006
6. mars 2006

Til baka