logo-for-printing

04. apríl 2006

Moody's segir að ekki steðji hætta að greiðsluhæfi og lausafjárstöðu Íslands

 Í skýrslu sem birtist í dag, kemst matsfyrirtækið Moody’s að þeirri niðurstöðu að Ísland standi ekki frammi fyrir óhóflegum greiðsluhæfis- eða lausafjár-vandræðum vegna óstöðugleika sem nýlega hefur gætt í viðskipta- og fjármálaumhverfi landsins. Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs er Aaa.

Höfundur skýrslunnar, Joan Feldbaum-Vidra, hjá Moody’s segir: „Þótt við höfum varað við hættum sem fylgja aukinni skuldsetningu hagkerfisins, þá hefur Ísland hæstu lánshæfiseinkunn okkar og horfurnar eru stöðugar. Við teljum að áhyggjur sem nýverið hafa fram komið séu orðum auknar. 

Umtalsverð aukning erlendra skulda bankakerfisins og miklar skammtíma-skuldir eru meðal þeirra þátta sem nýlega hafa vakið upp spurningar um kerfisbundna áhættu í bankakerfinu.

Feldbaum-Vidra segir að Ísland sé mjög auðugt land sem vinnur að verulega aukinni fjölbreytni  í atvinnulífi. Landið hefur nægan aðgang að erlendu lausafé til viðbótar því sem bankarnir hafa, og það ætti að duga  fyrir stjórnvöld og bankakerfið til að standast óróatíma á markaði.

Hún benti á traust fjármál hins opinbera með skuldahlutföll í kringum 30% af vergri landsframleiðslu og 60% af tekjum, sem eru um helmingur af því sem gerist í Þýskalandi og Frakklandi.

„Ísland er í góðri stöðu til að takast á við hvaða hugsanlegu kröfu á ríkis-bjargráð sem gæti sprottið af kerfisvanda hvar sem er í hagkerfinu“, sagði sérfræðingurinn. Aaa lánshæfiseinkunn okkar fyrir Ísland er í samræmi við verstu tilvik af þeim toga.”

Nánari upplýsingar veita Davíð Oddsson formaður bankastjórnar og Sturla Pálsson framkvæmdastjóri alþjóðasviðs í síma 569-9600.

 

 

Nr. 12/2006

4. apríl 2006

 

Til baka