logo-for-printing

30. mars 2006

Seðlabanki Íslands hækkar vexti

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,75 prósentur frá og með 4. apríl n.k. í 11,5%. Aðrir vextir bankans verða einnig hækkaðir um 0,75 prósentur frá 1. apríl n.k. Í Peningamálum sem bankinn birtir á heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag eru færð rök fyrir ákvörðun bankastjórnar um að hækka vexti nú.

Næsta ákvörðun bankastjórnar um vexti verður að óbreyttu birt fimmtudaginn 18. maí n.k.

 

Nr. 11/2006

30. mars 2006

 

Til baka