logo-for-printing

06. desember 2005

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok nóvember 2005

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok nóvember 2005 og til samanburðar í lok október 2005 og í lok desember 2004.

Gjaldeyrisforði bankans jókst um 4,7 milljarða króna í mánuðinum og nam 64,2 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 1.016 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gjaldeyrisforðinn jókst vegna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði og gengishagnaðar.

Gengi íslensku krónunnar veiktist um 1,7% í nóvember.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,5 milljarða króna í nóvember og námu 62,8 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 1,8 milljarð króna og námu 12,8 milljörðum króna í mánaðarlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 1,8 milljörðum króna í lok nóvember miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir hækkuðu um 5,2 milljarða króna í mánuðinum og námu 28,9 milljörðum króna í nóvemberlok.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana lækkuðu um 1,2 milljarða króna og námu 65 milljörðum króna í lok nóvember.

Grunnfé bankans jókst í nóvember um 5,1 milljarð króna og nam 41,3 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 38kb)

Nr. 39/2005
6. desember 2005

Til baka