logo-for-printing

23. nóvember 2005

Úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á hagskýrslugerð og birtingu tölfræðilegra gagna á Íslandi

Í gær voru birtar á heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins niðurstöður úr úttekt á hagskýrslugerð og birtingu tölfræðilegra gagna sem sérfræðingar sjóðsins gerðu á Íslandi í febrúar 2005. Úttektin náði til hagskýrslugerðar á sviði þjóðhagsreikninga, verðvísitalna (neysluverðs og framleiðsluverðs), fjármála hins opinbera, peningamála og greiðslujafnaðar. Í henni tóku þátt Hagstofa Íslands, fjármálaráðuneytið og Seðlabanki Íslands. Úttektin er ein af mörgum sem fellur undir svo kallaða ROSC-áætlun (e. Reports on the Observance of Standards and Codes) en hlutverk hennar er að kanna hvernig aðildarríkjum sjóðsins tekst til við að fylgja alþjóðlegum stöðlum um vinnslu, gæði og birtingu haggagna. Markmið ROSC-áætlunarinnar er jafnframt að stuðla að aukinni alþjóðlegri samræmingu í úrvinnslu og miðlun tölfræðilegra gagna.

Niðurstöður úttektarinnar má sjá á vefsíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 

Nánari upplýsingar veitir Sveinn E. Sigurðsson framkvæmdastjóri tölfræðisviðs Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

35/2005
23. nóvember 2005

Til baka