logo-for-printing

06. október 2005

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok september 2005

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok september 2005 og til samanburðar í lok ágúst 2005 og í lok desember 2004.

Gjaldeyrisforði bankans jókst um 12,4 milljarða króna í mánuðinum og nam 70,7 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 1.148 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Mestu um stækkun forðans veldur að sá hluti af söluandvirði Símans sem greiddur var í erlendum gjaldeyri og ekki var þegar nýttur til endurgreiðslu erlendra lána ríkissjóðs var lagður inn á gjaldeyrisreikning í Seðlabankanum.. Honum verður varið til niðurgreiðslu erlendra lána í október.

Gengi íslensku krónunnar styrktist um 3,1% í september.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 22,4 milljarða króna í september og námu 49 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 5,2 milljarða króna og námu 13,8 milljörðum króna í mánaðarlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 2,1 milljörðum króna í lok september miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir lækkuðu um 3,4 milljarða króna í mánuðinum og námu 14,7 milljörðum króna í septemberlok.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana hækkuðu um 45 milljarða króna og námu 73 milljörðum króna í lok september.

Grunnfé bankans lækkaði í september um 3,3 milljarða króna og nam 27,4 milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 38 kb)


Nr. 29/2005
6. október 2005

Til baka