logo-for-printing

06. september 2005

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok ágúst 2005

Gjaldeyrisforði bankans minnkaði um 0,6 milljarða króna í mánuðinum og nam 58,3 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 923 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gengi íslensku krónunnar styrktist um 1,7% í ágúst.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 6,1 milljarð króna í ágúst og námu 26,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 2,2 milljarða króna og námu 8,6 milljörðum króna í mánaðarlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 2,1 milljarði króna í lok ágúst miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir lækkuðu um 6,9 milljarða króna í mánuðinum og námu 18,1 milljarði króna í ágústlok.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana hækkuðu um 12,2 milljarða króna og námu 28 milljörðum króna í lok ágúst.

Grunnfé bankans lækkaði í ágúst um 7,6 milljarða króna og nam 30,7 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 37 kb)


Nr. 24/2005
6. september 2005

Til baka