logo-for-printing

02. maí 2005

Sérstök endurgreiðsla á erlendum lánum ríkissjóðs

Fjármálaráðherra hefur ákveðið, í ljósi bættrar greiðslustöðu ríkissjóðs, að auka uppgreiðslu erlendra lána ríkissjóðs á árinu frá því sem áður var ákveðið. Nú í maí verða því greiddar 100 milljónir Bandaríkjadala af skammtímalánum umfram það sem áður hafði verið tilkynnt um.

Endurgreidd verða lán á gjalddaga á tímabilinu 13. til 27. maí n.k. Fjármálaráðuneytið hefur vegna þessa óskað eftir að kaupa 100 milljónir dala af Seðlabankanum, jafnvirði liðlega 6 ma.kr.

Í desemberhefti Peningamála 2004 sagði að til þess að mæta þörfum ríkissjóðs vegna greiðslna af erlendum lánum 2005 umfram það sem rúmast innan reglulegra gjaldeyriskaupa á árinu myndi Seðlabankinn kaupa gjaldeyri fyrir hönd ríkissjóðs á innlendum millibankamarkaði. Tilhögun kaupanna yrði tilkynnt viðskiptavökum á gjaldeyrismarkaði með fyrirvara. Í samræmi við þetta og sérstök áform ríkissjóðs sem lýst er að framan hefur bankinn nú ákveðið að kaupa gjaldeyri á millibankamarkaði í fimm áföngum, 20 milljónir Bandaríkjadala í senn, dagana 12., 17., 19., 23. og 25. maí n.k. Seðlabankinn mun leita tilboða hjá viðskiptavökum á gjaldeyrismarkaði fyrir opnun viðskipta ofangreinda daga.

Ekki eru áform um frekari sérstök gjaldeyriskaup í ár vegna lánahreyfinga ríkissjóðs.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Guðnason bankastjóri í síma 569-9600.

 

Nr. 11/2005
2. maí 2005

Til baka