logo-for-printing

22. mars 2005

Seðlabanki Íslands hækkar vexti

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur frá og með 29. mars n.k. í 9%. Seðlabankinn hefur þá hækkað stýrivexti sína um 3,7 prósentur síðan í maí sl. Í ársfjórðungsritinu Peningamálum sem bankinn birti á heimasíðu sinni í dag eru færð rök fyrir nauðsyn þess að hækka vexti nú.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnar í síma 569-9600.

Nr. 8/2005
22. mars 2005


Til baka