logo-for-printing

04. mars 2005

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok febrúar 2005

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok febrúar 2005 og til samanburðar í lok janúar 2005 og í lok desember 2004.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 0,6 milljarða króna í febrúar sl. í samræmi við áður kynnta áætlun hans um að viðhalda gjaldeyrisstöðu sinni. Gjaldeyrisforði bankans dróst saman um 4,9 milljarða króna í mánuðinum og nam 60 milljörðum króna í lok mánaðarins sem jafngildir 995 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Þessi lækkun skýrist af lánahreyfingum ríkissjóðs og gengisendurmati, en gengi íslensku krónunnar styrktist um 1,4% í febrúar.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 4 milljarða króna í febrúar og námu 18,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 0,4 milljarða króna og námu 8,8 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 2,6 milljörðum króna í febrúarlok miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir lækkuðu um 6,5 milljarða króna í mánuðinum og námu 15,9 milljörðum króna í febrúarlok, en skuldir við aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana jukust um 6,4 milljarða króna og námu 25 milljörðum króna í lok febrúar. 

Grunnfé bankans lækkaði í febrúar um 6,7 milljarða króna og nam 27 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu

 Nr. 7/2005
4. mars 2005

Til baka