logo-for-printing

21. febrúar 2005

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum

Fyrsti kafli hér að neðan um dráttarvexti er birtur samkvæmt 2. mgr. 10. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, og gilda dráttarvextir sem þar eru sýndir í sex mánuði í senn frá 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Annar kafli um almenna vexti er birtur samkvæmt 2. mgr. 10. gr., sbr. 4. og 8. gr. sömu laga og þriðji kafli samkvæmt bráðabirgðaákvæði III í sömu lögum og gilda vextir samkvæmt II. og III. kafla næsta almanaksmánuðinn eða uns næsta tilkynning birtist.
Vextir sem breytast eru merktir með stjörnu (*). Innan sviga eru sýndir vextir fyrir breytingu.

              Vextir alls á ári

I. Dráttarvextir af peningakröfum í krónum                                         f.o.m. 1. mars 2005

 1.  Grunnur dráttarvaxta1   8,25% 
 2. Vanefndaálag2   11,75%
 3.  Dráttarvextir3  20,0%

II. Almennir vextir

 1.  Vextir óverðtryggðra lána skv. 4. gr.4  10,0% 
 2.  Vextir verðtryggðra lána skv. 4. gr.4  4,15%
 3.  Vextir af skaðabótakröfum5  6,7%

III. Dráttarvextir af peningakröfum í erlendri mynt 6

 1. Bandaríkjadollurum 5,5% 
 2. Sterlingspundum  8,0% 
 3.  Dönskum krónum 5,5% 
 4. Norskum krónum  5,5% 
 5. Sænskum krónum  5,5% 
 6.  Svissneskum frönkum 5,0% 
 7. Japönskum jenum  5,0% 
 8. Evrum  5,5%
Vextir óverðtryggðra lána skv. 4. gr.4
Til baka