logo-for-printing

04. febrúar 2005

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok janúar 2005

 Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok janúar 2005 og til samanburðar í lok desember 2004 og í lok desember 2003.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 0,8 milljarða króna í janúar sl. í samræmi við áður kynnta áætlun hans um að viðhalda gjaldeyrisstöðu sinni. Gjaldeyrisforði bankans dróst saman um 0,6 milljarða króna í mánuðinum og nam 65 milljörðum króna í lok mánaðarins sem jafngildir 1.047 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gengi íslensku krónunnar styrktist um 1,6% í janúar.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 17,6 milljarða króna í janúar og námu 14,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu um 0,2 milljarða króna og námu 9,2 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 2,6 milljörðum króna í janúarlok miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir lækkuðu um 4,5 milljarða króna í mánuðinum og námu 22,4 milljörðum króna í janúarlok, en skuldir við aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 13,6 milljarða króna í mánuðinum.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana jukust um 0,8 milljarða króna og námu 18,6 milljörðum króna í lok janúar. 

Grunnfé bankans lækkaði í janúar um 4,9 milljarða króna og nam 33,7 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu

Til baka