logo-for-printing

16. desember 2004

Málstofa í dag: Alþjóðavæðing bankanna og áhrif á starfsemi Seðlabankans

Í dag, fimmtudaginn 16. desember kl. 15.00, verður haldin málstofa í fundarsal Seðlabanka Íslands, Sölvhóli. Málshefjandi er Tryggvi Pálsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabankans og ber erindi hans heitið: Alþjóðavæðing bankanna og áhrif á starfsemi Seðlabankans.

Ágrip erindis Tryggva Pálssonar:
Á allra síðustu árum hafa íslensku bankarnir breyst úr staðbundnum viðskiptabönkum í fjármálafyrirtæki sem skipta jafnt við erlenda viðskiptamenn sem innlenda. Auk lána og annarrar þjónustu sem veitt er erlendum aðilum frá Íslandi hefur verið byggt upp net starfsstöðva bankanna erlendis, bæði útibúa og dótturfélaga. Stærstu áfangarnir í útrás bankanna réðust í ár með yfirtökum á erlendum bönkum. Þungamiðja efnahagsreikninga íslensku bankanna er að færast til útlanda en höfuðstöðvar, lausafjárstjórn og áhættustýring er áfram á Íslandi.

Í málstofunni verða dregnar saman nokkrar staðreyndir um alþjóðavæðingu íslensku bankanna, tæpt á niðurstöðum rannsókna á yfirtökum banka, minnst á möguleika og hindranir innan EES og rætt um áhrif alþjóðavæðingarinnar á starfsemi Seðlabankans er varðar fjármálastöðugleika.

 

Sjá hér frekari upplýsingar um málstofur Seðlabanka Íslands.

Til baka