logo-for-printing

14. desember 2004

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.  Tvisvar á ári getur Seðlabankinn breytt dráttarvöxtum af peningakröfum í krónum. Frá og með 1. janúar öðlast gildi breyting á grunni dráttarvaxta til samræmis við breytta stýrivexti. Dráttarvextir í krónum hækka þá úr 17,5% í 20,0%. Vextir óverðtryggðra lána hækka um eina prósentu frá fyrri mánuði í kjölfar hækkunar vaxta innlánsstofnana vegna breytinga stýrivaxta. Almennir vextir óverðtryggðra lána verða því 10,0%. Vextir skaðabótakrafna hækka til samræmis við hækkun óverðtryggðra vaxta og verða 6,7%. Vextir verðtryggðra lána lækka til samræmis við lægstu vexti innlánsstofnana og verða 4,15%. Engar breytingar verða á dráttarvöxtum peningakrafna í erlendri mynt að þessu sinni.

 

Sjá nánar á sérstakri síðu fyrir tilkynningar um vexti

Til baka