logo-for-printing

04. nóvember 2004

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok október 2004

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok október 2004 og til samanburðar í lok september 2004 og í lok desember 2003.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,4 milljarða króna í október sl. í samræmi við áður kynnta áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína. Gjaldeyrisforði bankans minnkaði um 5 milljarða króna í mánuðinum og nam 66,1 milljarði króna í lok mánaðarins sem jafngildir 959 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Þessa lækkun má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs og einnig varð nokkurt gengistap í mánuðinum sem stafaði af því að gengi íslensku krónunnar styrktist um 0,12% í október.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 11 milljarða króna í október og námu 20,6 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust og námu 11,2 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,2 milljörðum króna í októberlok miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir jukust um 9,6 milljarða króna í mánuðinum  og námu 27,6 milljörðum króna í mánaðarlok, en skuldir við aðrar fjármálastofnanir stóðu því sem næst í stað.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana minnkuðu um 2,9 milljarða króna og námu 17 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans hækkaði í október um 9,7 milljarða króna og nam 38,6 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

 

Fréttin í heild ásamt meðfylgjandi töflu (pdf-skjal, 63 kb)

 

Nr. 30/2004
4. nóvember 2004

Til baka