logo-for-printing

06. október 2004

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok september 2004

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok september 2004 og til samanburðar í lok ágúst 2004 og í lok desember 2003.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,6 milljarða króna í september sl. í samræmi við áður kynnta áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína.  Þrátt fyrir gengistap af völdum 0,6% hækkunar á gengi krónunnar í september jókst gjaldeyrisforði bankans um 0,3 milljarða króna í mánuðinum og nam 71,1 milljarði króna í lok hans sem jafngildir 1.004 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir minnkuðu um 11,5 milljarða króna í september og námu 9,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust og námu 10,7 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,2 milljörðum króna í septemberlok miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir drógust saman í mánuðinum um 5,3 milljarða króna og námu 18 milljörðum króna í mánaðarlok, en skuldir við aðrar fjármálastofnanir stóðu því sem næst í stað.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana minnkuðu um 3,9 milljarða króna í september og námu 20 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans minnkaði í september um 5,5 milljarða króna og nam 29 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

 Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 18kb)

Nr. 27/2004
6. október 2004

 

 

Til baka