logo-for-printing

06. ágúst 2004

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok júlí 2004

Í meðfylgjandi yfirliti er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok júlí 2004 og til samanburðar í lok júní 2004 og í lok desember 2003.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,4 milljarða króna í júlí í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína (sjá t.d. nóvemberhefti Peningamála 2003). Töluvert gengistap varð í mánuðinum og dróst gjaldeyrisforði bankans saman um 0,4 milljarða króna. Nam hann 68,1 milljarði króna í lok mánaðarins sem jafngildir 954 milljónum Bandaríkjadala. Gengistapið stafaði af því að gengi íslensku krónunnar styrktist um 2,1% í júlí.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 3,8 milljarða króna í júlí og námu 27,4 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust um 2,8 milljarða króna og námu 9,8 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir jukust í mánuðinum um 15,6 milljarða króna, en skuldir við aðrar fjármálastofnanir stóðu því sem næst í stað.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3 milljörðum króna í júlílok miðað við markaðsverð.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana lækkuðu um 9,3 milljarða króna í júlí og námu 16,6 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans jókst í júlí um 16,5 milljarða króna og nam 46,8 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 49kb)

Nr. 22/2004
6. ágúst 2004

Til baka