28. júní 2004
Málstofa þriðjudaginn 29. júní
Málstofa um ákvarðanir við skilyrði óvissu verður haldin í Sölvhóli,
Seðlabanka Íslands, þriðjudaginn 29. júní kl. 15.00. Málshefjandi er José
M. Bernardo, prófessor í háskólanum í Valencia á Spáni. Erindi hans er á ensku
og nefnist 'Decisions under Uncertainty: An Introduction to Bayesian Decision
Making'. Bernardo er sérfræðingur í bayesískum aðferðum, en þar er fléttað saman
ályktunarfræði um hvernig túlka beri mælingar og hins vegar því sem kallað er
ákvörðunarfræði.
Sjá hér nánar um aðrar málstofur
Nánar má lesa um José Bernardo á heimasíðu hans:
http://www.uv.es/~bernardo/